norbert-braun-uU8n5LuzpTc-unsplash
Picture of Hreiðar Haraldsson

Hreiðar Haraldsson

Hugarþjálfari

Einbeiting í íþróttum: 5 hlutir sem þú þarft að vita

Einbeiting í íþróttum er fyrirferðamikið viðfangsefni í íþróttasálfræði enda er einbeiting líklega sú færni sem er mikilvægust íþróttafólki í keppnum. Einbeiting er í raun sú færni sem íþróttafólk getur ekki verið án í keppni ætli það sér að skila hámarksframmistöðu. Það er því ekki úr vegi að telja upp þá 5 hluti sem hugarþjálfari telur íþróttafólk þurfa að vita um einbeitingu í íþróttum.

1. Einbeiting kemur og fer

Ímyndaðu þér að íþróttakeppnin sé beinn og breiður vegur frá A til B. Á meðan þú keyrir eftir veginum ertu í fullri einbeitingu, með fulla athygli á þeim stjórnanlegu þáttum sem þú þarft að vera að framkvæma á hverju augnabliki keppninnar. Þegar þú hins vegar missir einbeitingu er hægt að segja að þú rásir lítillega útfyrir veginn. Það er misskilningur að halda að það sé raunhæft að haldast á miðjum veginum í gegnum 90 mínútna fótboltaleik eða 18 holu golfhring. Íþróttakeppnin hendir alls konar hindrunum í veg fyrir þig svo sem slæmri byrjun í keppninni, lélegri dómgæslu, andstæðingi sem reynir að komast undir skinnið á þér, slæmu veðri eða lélegri frammistöðu. Það er eðlilegt að slíkar hindranir kippi íþróttafólki tímabundið útúr sínu flæði, taki það úr jafnvægi og þvingi það lítillega útfyrir veginn.

2. Núvitund er lykill

Góð einbeiting snýst ekki um að geta keyrt eftir beina veginum fullkomlega án þess að fibast í gegnum heila íþróttakeppni. Fyrsta skref góðrar einbeitingar snýst um að finna fyrir því og taka eftir því sem fyrst þegar þú missir einbeitinguna og bíllinn byrjar að rása. Þú vilt átta þig á að bíllinn sé byrjaður að rása áður en bíllinn er kominn langt út í skurð. Þetta er það sem kallast núvitund og er mjög æskilegt að íþróttafólk byggi upp t.d. með reglulegri núvitundarþjálfun.

3. Yfirvegun og æðruleysi er annar lykill

Ef fyrsta skref góðrar einbeitingar í íþróttakeppni er núvitundin sem felst í því að taka eftir því fljótt þegar þú missir einbeitinguna er annað skrefið að mæta þeirri staðreynd af yfirvegun og æðruleysi. Íþróttakeppnin er alls konar og þú berð tilfinningar gagnvart íþróttinni. Þess vegna sýnir þú þér skilning þegar atvik í leiknum hreyfa við þér, taka þig úr jafnvægi, vekja upp tilfinningar eða rífa til sín athyglina þína tímabundið. Æfðu þig í að halda ró þinni þó eitthvað trufli þig í leiknum og líttu á það sem eðlilegan hluta leiksins.

4. Íþróttafólk þarf einbeitingarakkeri

Þegar þú hefur áttað þig á því að einbeitingin hafi verið trufluð og þú hefur dregið djúpt andann og mætt því af æðruleysi viltu stýra bílnum strax inná veginn aftur. Þar spila þín persónulegu einbeitingarakkeri lykilhlutverk. Skilgreindu fyrir sjálfa/n þig 2-3 skýr einbeitingarakkeri sem þú grípur í og beinir athyglinni kröftuglega að á næstu augnablikum keppninar. Einbeitingarakkerin skulu vera einhvers konar grunnur að þínum leik og vera 100% undir þinni stjórn. Skilgreindu hvaða stjórnanlegu hluti þú vilt láta næstu 5 mínútur keppninnar snúast um þegar eitthvað hefur tekið þig úr jafnvægi.

5. Einbeiting er þjálfuð

Til að bæta snerpuna þína þá gerir þú snerpuæfingar, til að bæta úthaldið þitt gerir þú úthaldsæfingar, til að bæta tæknina þína gerir þú tækniæfingar, TIL AÐ BÆTA EINBEITINGU ÆFIR ÞÚ EINBEITINGU. Á hverri æfingu ættir þú að vera að æfa þig í þeim þremur skrefum góðrar einbeitingar sem lýst hefur verið í punktum 2, 3 og 4 hér í þessum pistli. Æfðu þig að taka eftir því hvar athyglin þín er, æfðu þig í að slaka á og mæta því af æðruleysi að eitthvað hafi tekið þig úr jafnvægi, og æfðu þig í að láta næstu 5 mínútur æfingarinnar eða keppninnar einkennast skýrt af einbeitingarakkerunum þínum.

Haus hugarþjálfunarstöð er staðurinn þar sem þú lærir í gegnum fræðslumyndbönd og æfingatæki að leggja reglulega rækt við að styrkja einbeitinguna þína á íþróttavellinum. Kynntu þér Haus hugarþjálfunarstöð hér.

MÁ EKKI BJÓÐA ÞÉR AÐ DEILA PISTLINUM?