craig-lovelidge-COxd0Jbe7u8-unsplash (1)
Picture of Hreiðar Haraldsson

Hreiðar Haraldsson

Hugarþjálfari

Haus hugarþjálfunarstöð

Á vordögum árið 2023 opnaði Haus hugarþjálfunarstöð. Um er að ræða þjálfunarstöð á netinu þar sem íþróttafólk fær vandaða, metnaðarfulla og hagnýta þjálfun hugarfarslegra þátta í íþróttum. Meginmarkmið stöðvarinnar er að hjálpa íþróttafólki að innleiða reglulega þjálfun hugarfarslegra þátta inn í sína æfingarútínu sem mun á endanum efla íþróttafólk hugarfarslega og hjálpa því að takast á við hugarfarslegar áskoranir íþróttanna og lífsins. Þeir þættir sem unnið er með í Haus hugarþjálfunarstöð í dag eru einbeiting, sjálfstraust og markmiðasetning. 

Fræðslumyndbönd og æfingatæki

Uppistaðan í Haus hugarþjálfunarstöð eru stutt og hnitmiðuð fræðslumyndbönd, sem unnin eru af sérfræðingi í íþróttasálfræði, þar sem íþróttafólk öðlast mikilvæga þekkingu á þáttunum þremur sem nefndir voru hér að ofan. Hin stoðin í Haus hugarþjálfunarstöð eru svo æfingatæki í formi verkefna sem notendum stöðvarinnar er ætlað að vinna með á æfingum og í keppnum.  

Góð reynsla af mikilvægri þjálfun

Það er einróma álit allra sem á einhvern hátt koma að íþróttaiðkun og íþróttaþjálfun barna, unglinga og fullorðinna að þjálfun hugarfarslegra þátta skipti höfuðmáli fyrir vellíðan og árangur íþróttafólks á öllum aldri. Haus hugarþjálfunarstöð er staðurinn þar sem íþróttafólk fær þessa þjálfun á hagnýtan hátt þar sem áhersla er lögð á notkun æfingatækja sem gerir íþróttafólki kleift að hagnýta þekkingu fræðslumyndbandanna á íþróttavellinum. Haus hugarþjálfunarstöð er frábær lausn fyrir allt íþróttafólk sem vill sýna metnað í verki og kynnast hugarþjálfun í gegnum hágæða fræðslu.

Frá opnun hefur fjöldi íþróttafólks farið í gegnum þjálfun í Haus hugarþjálfunarstöð og hefur reynsla þeirra verið mjög góð. Íþróttafólk úr körfubolta, skotfimi, handbolta, fótbolta, hnefaleikum og íshokkí hefur allt líst því að vinnan í stöðinni hafi reynst þeim einstaklega vel og í flestum tilfellum að afrakstur vinnunar hafi farið fram úr væntingum. Það er því ljóst að Haus hugarþjálfunarstöð höfðar til íþróttafólks í öllum greinum.

Kíkið inn

Á eftirfarandi hlekk getið þið litið inn í Haus hugarþjálfunarstöð og kynnt ykkur betur það sem stöðin hefur uppá að bjóða.

Hlekkur á stöðina: Haus hugarþjálfunarstöð – Haus.is

MÁ EKKI BJÓÐA ÞÉR AÐ DEILA PISTLINUM?