Skilmálar Hauss hugarþjálfunarstöðvar

  1. Aðgangur að Haus hugarþjálfunarstöð opnast eftir að full greiðsla hefur farið fram og lokast fjórum mánuðum eftir opnun.
  2. Þar sem allt efni stöðvarinnar verður viðskiptavini strax aðgengilegt við opnun aðgangs er aðgangsgjald ekki endurgreitt.
  3. Ef af tæknilegum ástæðum viðskiptavinur getur ekki nýtt það sem stöðin hefur uppá að bjóða að fullu mun Haus hugarþjálfun kappkosta að gera efnið aðgengilegt og nothæft viðskiptavini með öðrum leiðum.
  4. Hver keyptur aðgangur að stöðinni er aðeins ætlaður einum einstaklingi. Það er með öllu óheimilt að deila aðgangi sínum með öðrum aðila.
  5. Óheimilt er að afrita á nokkurn hátt fræðslumyndbönd eða æfingatæki stöðvarinnar og deila með öðrum.
  6. Haus hugarþjálfun áskilur sér rétt til að loka aðgangi þess einstaklings sem gerist uppvís að brotum á skilmálum þessum án endurgreiðslu.