alejandro-garay-1RxbuMvugxk-unsplash
Picture of Hreiðar Haraldsson

Hreiðar Haraldsson

Hugarþjálfari

Stjórnar lottó sjálfstrausti þínu?

“Ef réttu tölurnar koma upp í lottóinu á laugardag þá verð ég með sjálfstraust í leiknum á sunnudag, svo nú er bara að krossa putta og vona það besta”.

Við getum líklega öll verið sammála um að þetta sé ekki góður staður fyrir íþróttafólk að hafa sitt sjálfstraust á. Íþróttafólk hlýtur að vilja hafa sjálfstraust sitt reist á traustari grunni en lottótölum laugardagsins. Þrátt fyrir að það blasi við hversu óæskilegt það sé að setja sjálfstraust sitt í hendurnar á lottóinu þá er það hins vegar gríðarlega algengt að íþróttafólk byggi sjálfstraust sitt á jafn ótraustum grunni og lottóið er.

Lottóið sem stjórnar sjálfstrausti íþróttafólks

Eitt fyrirferðamesta viðfangsefnið í mínu starfi með íþróttafólki er að fá íþróttafólk af því að byggja sjálfsvirði sitt og sjálfstraust á lottói og fá það til að byggja sjálfstraust sitt á traustum grunni. Lottóið sem um er rætt hér er tölfræði, liðsval, úrslit, samanburður, álit og umtal annarra, markaskorun og fleiri óstjórnanlegir þættir. Þegar þú byggir frammistöðumat þitt, og mat á eigin virði, á þessum  óstjórnanlegu þáttum ertu um leið að byggja sjálfstraust þitt á þeim þáttum. Þáttum sem eru í raun lottó. Vellíðan þín á vellinum verður háð því hvort skotin þín séu að detta ofan í körfuna eða uppúr henni þann daginn, hvort andstæðingurinn sé á sínum besta degi og þú tapar eða hvort hann sé á sínum versta degi og þú vinnur, hvort þjálfarinn velji þig í liðið í dag eða hvort keppninautur þinn um sætið verði fyrir valinu í dag. Sjálfstraust sem byggt er á þessum grunni er brothætt og ótraust sjálfstraust sem getur rokkað upp og niður fyrir tilstilli hluta sem þú hefur í raun mjög takmarkaða, eða enga, stjórn á. 

Gildi sem lykilverkfæri

“Gildi” er frábært verkfæri til að skilgreina frammistöðumat og mat á eigin virði útfrá nýjum og stjórnanlegri þáttum. Með gildum er átt við þau karaktereinkenni sem þér finnst mikilvægast að standa fyrir sem íþróttamanneskja og þér finnst mikilvægast að einkenni þinn leik. Sem dæmi um algeng og árangursrík gildi íþróttafólks má nefna baráttu, vinnusemi, dugnað, ákveðni, orku, jákvæðni, hugrekki og leiðtoga. Gildi eru fullkomlega stjórnanlegir þættir sem öllu jafna stuðla að góðri frammistöðu og einstaklingnum þykir mikilvægt að einkenni sinn leik.

Leggðu vinnu í að gera sjálfstraust þitt stöðugra

Sestu nú niður og veltu fyrir þér þínum persónulegu gildum sem íþróttamanneskja. Ímyndaðu þér að þú sért að fara að keppa í kvöld og í stúkuna mætir manneskja sem hefur aldrei séð þig spila áður. Hvaða karaktereinkenni finnst þér mikilvægast að þessi manneskja sjái að einkenni þinn leik. Fyrir hvað viltu standa? Leggðu þig svo fram um að þjálfa upp það hugarfar og þann fókus á æfingum og í keppnum að frammistaða snúist fyrst og fremst um að þú skilir af þér þínum persónulegu gildum í keppninni eða á æfingunni, að gildin þín einkenni allt sem þú gerir. Æfðu þig í að byggja frammistöðumat þitt á framkvæmd gildanna frekar en óstjórnanlegum niðurstöðuþáttum eins og tölfræði, samanburði eða liðsvali. Taktu stjórn á eigin sjálfstrausti með því að byggja sjálfstraust þitt á stjórnanlegum hlutum frekar en að leyfa lottói að stjórna sjálfstrausti þínu.

MÁ EKKI BJÓÐA ÞÉR AÐ DEILA PISTLINUM?