Vertu þinn besti liðsfélagi

Hér á síðunni má finna eldri pistil um mikilvægi þess að íþróttafólk þjálfi upp eiginleikann að vera góður liðsmaður. Kjarninn í pistlinum er að íþróttafólk í hópíþróttum þurfi að átta sig á mikilvægi liðsfélaga sinna í eigin árangri. Með þetta mikilvægi að leiðarljósi gera góðir liðsmenn allt sem þeir geta til að gera liðsfélaga sína […]

Taktu ábyrgð í mótlæti

Ef ég fengi að gefa íþróttafólki aðeins eitt almennt ráð, þá væri ráðið eftirfarandi: „Taktu ábyrgð á því mótlæti sem þú stendur frammi fyrir“. Allt íþróttafólk lendir í mótlæti og í raun er mótlæti órjúfanlegur hluti af íþróttaiðkun. Íþróttafólk tapar, íþróttafólk á lélegar keppnir, íþróttafólk meiðist og íþróttafólk er ekki valið í lið. Að taka ábyrgð […]

Það mikilvægasta sem við getum kennt börnunum okkar

Það er líklega fátt sem hefur eins mikil áhrif á árangur okkar og hamingju og hugarfarið sem við búum yfir. Hugarfar okkar hefur áhrif á það hvernig við tökumst á við mótlæti, hvernig við bregðumst við þeim mistökum sem við gerum, hvaða verkefni við ákveðum að takast á við  í lífinu og hvernig við tökumst […]

5 ástæður fyrir því að íþróttafólk þarf sterkan Haus

Öll vita að til að ná árangri í íþróttum þarf bæði líkamlega og tæknilega getu. Þetta er geta sem íþróttafólk er að vinna í að bæta og viðhalda á hverjum einasta degi til að hoppa hærra, geta hlaupið lengra, til að geta tekið á móti boltanum og sent hann frá sér betur, eða til að […]

Takmarkanir foreldrahlutverksins

Í síðasta pistli var hlutverk foreldra í íþróttaiðkun barna gert að umræðuefni. Eins mikilvægt og það er að foreldrar séu með á hreinu hvað þeirra hlutverk felur í sér, er ekki síður mikilvægt að foreldrar átti sig á og virði takmarkanir hlutverksins. Því eins og í góðu liði er lykilleikmanninum ekki ætlað að leysa öll […]

Foreldrar eru lykilleikmenn

Stóri tilgangur íþróttaiðkunar barna og unglinga er að búa til öfluga einstaklinga, kenna og þjálfa upp hjá þeim ákveðna lífsfærni. Hlutverk íþrótta er að rækta hjá börnum og unglingum eiginleika sem búa þau undir lífið, hæfileika sem hjálpa þeim að ná árangri í lífinu og að takast á við þær áskoranir og hindranir sem lífið […]

Gildi, leiðarvísir í keppni

Hver er ég sem íþróttakona/íþróttamaður? Hvað einkennir mig á vellinum? Hvað vil ég að fólk sjái þegar það kemur og horfir á mig keppa? Svör þín við þessum spurningum ættu að fara langt með að hjálpa þér að skilgreina þín gildi. Gildi eru fá og vel skilgreind karaktereinkenni íþróttamanns/íþróttakonu. Gildi eru einkenni sem ALLTAF eru […]

Að baka árangur

Það er sunnudagsmorgun, kalt úti og ég fletti í gegnum kökubókina í leit að hinni fullkomnu köku til að baka. Girnilegasta kakan er fundin og ég er sannfærður um að þetta sé kakan sem mig langar í. Ég á allt hráefnið í kökuna og því er næsta skref að hefjast handa við að baka hana. […]

Sálfræðin í golfi

Það má færa fyrir því rök að í engri íþróttagrein sé andlegur styrkur eins mikilvægur og í golfi. Margar íþróttagreinar eru þess eðlis að hægt er að bjarga sinni frammistöðu með því að berjast nægilega mikið, hlaupa nægilega mikið og setja nægilega mikinn kraft í sinn leik. Þetta eru hlutir sem þurfa ekki að krefjast […]

Hvað er andlegur styrkur?

Það er farið að verða almenn vitneskja innan íþróttahreyfingarinnar að andlegur styrkur sé einn allra mikilvægasti þátturinn í árangri í íþróttum, ef ekki sá mikilvægasti. Það ríkir hins vegar enn ákveðinn misskilningur um eðli andlegs styrks og hvort hægt sé að byggja hann upp. Íþróttafólk virðist fast í þeirri trú að andlegur styrkur sé að […]